
Skriðan féll í Innri Búðará. Ljósm. tfk
Aurskriða féll síðastliðinn laugardag
Síðastliðinn laugdardag var líklega slegið úrkomumet í Grundarfirði þegar flóðgáttir opnuðust og vatn flæddi niður allar hlíðar. Eitthvað varð að láta undan og eru skýr ummerki um aurskriðu sem féll í hlíðunum fyrir ofan Grundarfjörð. Skriðan féll í Innri Búðará sem rennur svo til sjávar vestan megin við bæinn. Þetta hefur verið talsvert magn af jarðvegi því nokkuð stórt sár er á hlíðinni eins og sést á meðfylgjandi myndum.