
Illfært fyrir hjólhýsi á vegarkafla í Miðdölum
Milli Fellsenda og Erpsstaða í Miðdölum er búið að fræsa slitlagið af veginum og er hann nú mjög ósléttur og holóttur og illfær fyrir húsbíla og hjólhýsi, segir í umferdin.is Ökumönnum með slík tæki er bent á hjáleið um Hlíðarveg (585). Unnið verður að ræsagerð á þessum kafla í vikunni og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Hraði er takmarkaður og eru vegfarendur beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát.
Unnið er að viðgerðum og mikið er af lausri möl á veginum um Svínadal í Dölum. Hætta er á steinkasti og eru vegfarendur beðnir að aka með gát og sýna tillitssemi með því að hægja á þegar bíl er mætt og halda hæfilegri fjarlægð í næsta bíl.