
Lögregla þurfti að skerast í leikinn
Um klukkan 22:30 í gærkvöldi kom til átaka á tjaldvæðinu á Hellissandi á Snæfellsnesi. Fréttavefurinn Vísir greinir frá því að Lögreglan á Vesturlandi hafi óskað eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra vegna tilkynningar um mann með hnífa. Sérsveitin þurfti þó ekki að fara í neina sérstaka aðgerð vegna málsins, en Lögreglan á Vesturlandi náði að útkljá það á eigin spýtur. Þetta staðfesti Ásmundur Kr. Ásmundsson yfirlögregluþjónn á Vesturlandi í samtali við Vísi. Í hlut átti erlendur ferðamaður. Hann dvaldi á tjaldstæðinu ásamt fjölsyldu sinni, en var sagður hafa gengið af tjaldstæðinu með hnífa meðferðis. Hann var jafnframt sagður hafa sýnt af sér undarlega hegðun. Maðurinn fannst eftir leit lögreglu en engir hnífar fundust. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð og vakthafandi læknir var kallaður til; ræddi við hann og skoðaði. Hann hefur nú verið látinn laus.