
Árni Einarsson, landsfræg aflakló, er hér að gera bát sinn Hjördísi SH kláran til veiða daginn áður en strandveiðitímabilið hófst í vor. Ljósm. af
Strandveiðum lokið þetta sumarið
Í gær var síðasti dagur strandveiða. Rúmlega 500 tonn af þorski voru eftir í pottinum í gærmorgun sem er örlítið meira en afli mánudagsins. Sjósókn var góð í gær og því ákvað Fiskistofa að loka fyrir frekari veiðar og fella brott öll strandveiðileyfi frá og með deginum í dag, 17. júlí. Leyfilegt veiðimagn á þessari vertíð var 12 þúsund tonn, eftir að matvælaráðherra jók heimildirnar um tvö þúsund tonn í byrjun mánaðarins. Það dugði til þess að veiðarnar voru stundaðar fimm dögum lengur en í fyrra.