
Erlendur veiðimaður með lax á Norðtungueyrum í Þverá.
Fín veiði þegar holl landaði 83 löxum í Kjarará
„Veiðin hefur gengið feiknavel hérna í Þverá og Kjarará, síðasta holl í Kjarará fékk 83 laxa,“ sagði Egill Ástráðsson þegar hann var að enda við við leiðsegja veiðimönnum við Þverá í gærkvöldi. Árnar eru nú að detta í 750 laxa sem verður að teljast fín veið. Kjarará og Þverá fóru ekki í flóð eins og meðal annars Norðurá gerði í nokkra daga. „Þetta er bara æðisleg veiði hérna hjá okkur og mikið af fiski víða,“ sagði Egill ennfremur.