
Landskjörstjórn opnaði í gær stafrænt meðmælakerfi fyrir alþingiskosningarnar 30. nóvember og geta stjórnmálasamtök, sem hafa fengið úthlutuðum listabókstaf frá dómsmálaráðuneytinu, nú stofnað stafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sín í öllum kjördæmum. Stafræna meðmælakerfið var unnið í samstarfi Stafræns Íslands og Þjóðskrár og var þróun þess komin áleiðis þegar ljóst varð að kosið yrði í lok nóvember.…Lesa meira








