Hluti hópsins í búðunum að iðka íslenska glímu af ákefð og ástríðu. Ljósm. Reynir Á Óskarsson

Fóru í glímuferð til Bandaríkjanna

Skemmtileg glímuför var farin til Maryland í Bandaríkjunum í byrjun október. Fjórar glímuhetjur spenntu á sig beltið og héldu í Vesturheim. Það voru þau Þórður Páll Ólafsson glímukóngur, Kristín Embla Guðjónsdóttir glímudrottning til þriggja ára og þar á meðal síðasta árs, Einar Eyþórsson glímukóngur síðasta árs ásamt Jóhönnu Vigdísi Pálmadóttur sem meðal annars hefur hlotið titilinn Íþróttamaður UDN 2021 og 2023.

Fóru í glímuferð til Bandaríkjanna - Skessuhorn