
Uppstilling verður á öllum listum Viðreisnar
Öll landshlutaráð Viðreisnar hafa nú ákveðið að það verði uppstilling á listum flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Fundað var í Norðvesturráði í gærkvöldi. „Mikil umræða spannst um hvort fara ætti í uppstillingu eða prófkjör og mikill hugur að stefna næst að prófkjöri, þegar rýmri tími gefst til að raða á lista,“ segir í tilkynningu.
„Landshlutaráð í öllum kjördæmum hafa kosið sér uppstillingarnefndir, sem hefja strax störf. Þau sem áhugasöm eru um að vera á lista Viðreisnar í þessum kjördæmum geta skráð sig á síðu flokksins en einnig er hægt að senda tölvupóst á uppstillingarnefnd á netfangið: nordvestur@vidreisn.is. „Óskað er að tilnefningar berist fyrir laugardag, svo að uppstillinganefndir geti lokið störfum í næstu viku. Þá verða listar bornir undir landshlutaráð til samþykktar og stjórn Viðreisnar til staðfestingar,“ segir í tilkynningu.