
Jóhann Pétursson framkvæmdastjóri Víkings og Brynjar Kristmundsson. Ljósm. Víkingur Ó.
Brynjar gerir tveggja ára samning við Víking
Knattspyrnuþjálfarinn Brynjar Kristmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík sem gildir til loka tímabilsins 2026 en hann hefur verið þjálfari liðsins undanfarin tvö ár. Víkingur var í harðri baráttu í sumar um að komast upp í Lengjudeildina en liðið endaði í 4. sæti í 2. deild og var aðeins einu stigi frá því að komast upp.