
Hópurinn ásamt Valgerði kennara sínum. Ljósm. mm
Hittu nemendur í fjölmiðlanámi við HÍ
Fulltrúar þriggja landshlutamiðla; Páll Ketilsson frá Víkurfréttum, Gunnar Gunnarsson frá Austurglugganum (á Teams) og Magnús Magnússon frá Skessuhorni hittu í morgun vaskan hóp nemenda í blaðamannsnámi við Háskóla Íslands. Kennari þeirra er Valgerður Anna Jóhannsdóttir. Rætt var um fjölmiðlun í víðum skilningi, fjölmiðla á landsbyggðinni, mikilvægi þeirra; tækifæri og áskoranir og gestirnir spurðir spjörunum úr.