Fréttir

true

Tíu nýir þjálfarar í yngri flokkum hjá ÍA

Nú er búið að leggja lokahönd á ráðningu þjálfara í yngri flokkum Knattspyrnufélags ÍA fyrir næsta tímabil. Alls koma tíu nýir þjálfarar inn í þjálfarateymi ÍA og eru þeir eftirfarandi: Aron Ýmir Pétursson tekur alfarið við sem yfirþjálfari yngri flokka af Skarphéðni Magnússyni sem einbeitir sér nú að þjálfun yngstu flokka félagsins og meistaraflokki kvenna.…Lesa meira

true

Tók upp myndbönd við aksturinn

Í liðinni viku voru afskipti höfð af 55 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Í einu málinu mældist ökumaður á rúmlega tvöföldum hámarkshraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Tveir ökumenn eru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Nokkrir ökumenn voru staðnir að verki í símanum við akstur og…Lesa meira

true

Nokkur fjölgun brottfara frá landinu

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 223 þúsund í nýliðnum september samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Um er að ræða tæplega 5 þúsund fleiri brottfarir en í september á síðasta ári. Flestar brottfarir mátti rekja til Bandaríkjamanna eða tæplega þriðjung. Brottfarir Íslendinga voru 52 þúsund í september. Frá áramótum hafa um 1,7 milljónir erlendra…Lesa meira

true

HSH verður Fyrirmyndarhérað ÍSÍ

Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á formannafundi HSH sem fram fór í Grunnskóla Stykkishólms þriðjudaginn 15. október sl. Það var Hörður Þorsteinsson gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ sem afhenti formanni HSH, Hjörleifi Kristni Hjörleifssyni, viðurkenninguna. „Að fá þessa viðurkenningu mun hjálpa HSH að vera sýnilegt og halda áfram á þeirri vegferð sem…Lesa meira

true

Afli í september var 98 þúsund tonn

Landaður afli í september var 98 þúsund tonn sem er 18% minna en í september á síðasta ári. Veiði jókst í öllum helstu tegundum botnfiska en þorskafli var tæplega 21 þúsund tonn og jókst um 19% miðað við september 2023, ýsuafli jókst um 11% og ufsaafli um 9%. Flatfisksafli jókst einnig um 57%. Þetta kemur…Lesa meira

true

Stór æfing lögreglu og viðbragðsaðila fer fram í dag

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi segir að í dag, fimmtudaginn 17. október, fer fram stór æfing á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. „Sérsveit, Fjarskiptamiðstöð og Menntasetur Ríkislögreglustjóra taka þátt og munu sjúkraflutningar HVE ásamt Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar einnig taka þátt í æfingunni. Við vonum að þetta valdi ekki óþægindum og að vegfarendur sýni þessu…Lesa meira

true

Teitur býður sig fram í forystusætið

Í tilkynningu frá Teiti Birni Einarssyni alþingismanni Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi segir: „Ég býð mig fram til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að leggja til að þing verði rofið og þar með boðað til alþingiskosninga var hárrétt. Kyrrstaða í málum sem eru jafn mikilvæg framtíð þjóðarinnar og raun ber vitni…Lesa meira

true

„Ég varð aðeins að breyta til“

Rætt við Þóri Valdimar Indriðason smið um störf hans hjá leigufélaginu Bríeti Þórir Indriðason hefur unnið sem smiður í 34 ár, hann fór beint úr grunnskóla í trésmíðanám og hefur að mestu starfað sem sjálfstæður smiður. Þórir var við tölvuna á skrifstofu leigufélagsins Bríetar, að Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi, þegar Skessuhorn bankaði upp á en…Lesa meira

true

Nokkuð um umferðaróhöpp

Nokkur umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Bílvelta varð á Snæfellsnesvegi og voru tveir fluttir á brott með sjúkrabifreið en meiðsli talin minniháttar. Tveir árekstrar urðu á Snæfellsnesi þar sem færð á vegi kom við sögu; snjóþekja og hálka var á veginum í báðum tilvikum og ekki allar bifreiðar búnar…Lesa meira

true

Ólafur Adolfsson gefur kost á sér til forystu í NV kjördæmi

Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Ólafur hefur ekki áður gefið kost á sér í landsmálin en var um árabil oddviti Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samhliða rekstri Apóteks Vesturlands. Auk Ólafs tilkynnti Teitur Björn Einarsson alþingismaður í dag að…Lesa meira