
Frá vinstri: Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson formaður HSH og Hörður Þorsteinsson gjaldkeri framkvæmdarstjórnar ÍSÍ. Ljósm. ÍSÍ.
HSH verður Fyrirmyndarhérað ÍSÍ
Héraðssamband Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu (HSH) fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á formannafundi HSH sem fram fór í Grunnskóla Stykkishólms þriðjudaginn 15. október sl. Það var Hörður Þorsteinsson gjaldkeri framkvæmdastjórnar ÍSÍ sem afhenti formanni HSH, Hjörleifi Kristni Hjörleifssyni, viðurkenninguna. „Að fá þessa viðurkenningu mun hjálpa HSH að vera sýnilegt og halda áfram á þeirri vegferð sem félagið hefur verið að vinna að undanfarin misseri. Að vinna undir góðu skipuriti og skilgreiningu á hlutverki stjórnar og starfsmanna ásamt skýrri stefnu í hinum ýmsu málaflokkum, gerir alla vinnu mun auðveldari,“ sagði Hjörleifur Kristinn Hjörleifsson formaður HSH af þessu tilefni