Stór æfing lögreglu og viðbragðsaðila fer fram í dag

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi segir að í dag, fimmtudaginn 17. október, fer fram stór æfing á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. „Sérsveit, Fjarskiptamiðstöð og Menntasetur Ríkislögreglustjóra taka þátt og munu sjúkraflutningar HVE ásamt Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar einnig taka þátt í æfingunni. Við vonum að þetta valdi ekki óþægindum og að vegfarendur sýni þessu skilning og virði fyrirmæli lögreglunnar ef á reynir,“ segir í tilkynningu.