
Auður Kjartansdóttir
Auður Kjartansdóttir býður sig fram í þriðja sæti hjá Sjálfstæðisfólki
„Ég ætla að gefa kost á mér í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi,“ segir Auður Kjartansdóttir í tilkynningu um framboð sitt. „Ég er búsett í Ólafsvík en uppalin í Stykkishólmi. Ég starfa sem fjármálastjóri hjá Fiskmarkaði Íslands, er bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ, stjórnarformaður Brúar lífeyrissjóðs og stjórnarmaður í Landssamtökum lífeyrissjóða,“ segir Auður.
Eins og kunnugt er verður á kjördæmaþingi í NV kjördæmi nk. sunnudag kosið í efstu sæti framboðslistans. Nú hafa tveir lýst vilja til að verma oddvitasætið; þeir Ólafur Adolfsson lyfsali á Akranesi og Teitur Björn Einarsson alþingismaður.