Fréttir

true

Gatnamót lokuð vegna umferðarslyss

Um klukkan 9:50 í morgun varð harður árekstur á gatnamótum Hvalfjarðarvegar (ofan við Laxárbakka) og hringvegarins í Hvalfjarðarsveit. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að gatnamótin eru nú lokuð. „Hjáleið er um Leirársveitarveg (504), Svínadalsveg (502) og Hvalfjarðarveg (47) fyrir Hvalfjörð. Ekkert er vitað um tímasetningu á opnun en það verður uppfært á www.umferdin.is um…Lesa meira

true

Harður árekstur á Hvalfjarðarvegi

Skömmu fyrir klukkan 10 í morgun varð harður árekstur á Hvalfjarðarvegi (47). Viðbragðsaðilar voru kallaðir út á hæsta forgangi kl. 9:50, meðal annars tækjabíll slökkviliðs, sjúkraliðar og lögregla. Þá greinir fréttavefur RUV frá því að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út vegna slyssins og er nú á leið í Hvalfjörðinn.Lesa meira

true

Andlát – Vignir Jónasson

Vignir Jónasson, knapi og hrossaræktandi, lést af slysförum í Svíþjóð síðastliðið sunnudagskvöld, 52 ára að aldri. Vignir hafði verið búsettur í Svíþjóð um árabil. Hann fæddist í Stykkishólmi 31. maí 1971 og ólst þar upp. Foreldrar hans eru Jónas Sigurðsson skipstjóri og Árný Ingibjörg Ólafsdóttir. Vignir fékk snemma áhuga á hrossum. Þegar hann fluttist ungur…Lesa meira

true

Sláturgrip var fargað vegna ófullnægjandi merkinga

Matvælaráðuneytið hefur í úrskurði staðfest ákvörðun Matvælastofnunar að hafna því að veita bónda undanþágu vegna ófullnægjandi einstaklingsmerkinga á nautgrip sem sendur var í sláturhús og var skrokknum fargað af þeim sökum. Innleggjandi sendi fimm nautgripi til slátrunar og við innlögnina fylgdu matvælaferilsupplýsingar, þ.m.t. upplýsingar um einstaklingsmerkingar gripanna og að þeir hefðu ekki fengið nein lyf…Lesa meira

true

Vinna hafin við lagnir úr borholum í Grundarfirði

Síðastliðið sumar voru boraðar nokkrar holur við íþróttasvæðið í Grundarfirði til varmasöfnunar. Nú er vinna hafin við að leggja lagnir úr holunum í lagnakistu og þaðan yfir í íþróttamannvirkin. Í kjallaranum á íþróttahúsinu verða varmaskiptadælurnar svo staðsettar. Einnig er verið að undirbúa rennslismælingar með dælu í vatnsmestu holunni af þeim níu sem verða nýttar. Rarik…Lesa meira

true

Skagafiskur til sölu

Eigendur fiskbúðarinnar Skagafisks sem er staðsett við Kirkjubraut 40 á Akranesi auglýstu í nóvember á síðasta ári að Skagafiskur væri til sölu. Að sögn hjónanna Péturs Ingasonar og Jónheiðar Gunnbjörnsdóttur, sem eiga og reka Skagafisk, hafa nokkrir aðilar sýnt áhuga á því að kaupa fyrirtækið en ekkert sé fast í hendi ennþá. „Við erum hálf…Lesa meira

true

Mikill fjöldi mætti til stuðnings Gunnari Smára

Styrktaræfing var haldin fyrir Borgnesinginn Gunnar Smára Jónbjörnsson síðasta laugardag og fór hún fram í Ægi Gym á Akranesi og Metabolic í Borgarnesi. Vegna mikillar þátttöku voru tvær æfingar á Akranesi, sú fyrri klukkan tíu um morguninn og sú seinni klukkan 11.15. Alls mættu um 150 manns á æfingarnar í Ægi Gym og var einstaklega…Lesa meira

true

Kviknaði í gám á grenndarstöð

Eftir hádegi í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út. Þá var eldur í pappagám á grenndarstöð á bakvið verslun Krónunnar á Akranesi. Slökkvistarf gekk hratt og vel. Innihaldið í gámnum er hins vegar ekkert lengur og gáminn þarf að mála upp á nýtt. Um eldsupptök er ekki vitað.Lesa meira

true

Sigur hjá Skagamönnum en tap hjá Snæfelli

Lið ÍA gerði sér ferð á Flúðir síðasta föstudag og mætti Hrunamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Hrunamenn byrjuðu mun betur í leiknum og voru komnir í 14:3 þegar fjórar mínútar voru liðnar af leiknum. Skagamenn virtust hálf ráðvilltir í fyrsta leikhluta og þegar ein mínúta var eftir af honum var staðan 30:16. En…Lesa meira

true

Gróskumikil menning kristallast í styrkjum Uppbyggingarsjóðs

Styrkjum var úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands síðastliðinn föstudag. Var það gert við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi, þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar er einnig til húsa. Úthlutað var þrenns konar styrkjum; stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarmála, atvinnu- og nýsköpunarstyrkjum og menningarstyrkjum. Í þetta sinn var samtals úthlutað rúmum 46 milljónum króna og fram kom…Lesa meira