
Pétur Ingason í Skagafiski. Texti/vaks Ljósm/mm
Skagafiskur til sölu
Eigendur fiskbúðarinnar Skagafisks sem er staðsett við Kirkjubraut 40 á Akranesi auglýstu í nóvember á síðasta ári að Skagafiskur væri til sölu. Að sögn hjónanna Péturs Ingasonar og Jónheiðar Gunnbjörnsdóttur, sem eiga og reka Skagafisk, hafa nokkrir aðilar sýnt áhuga á því að kaupa fyrirtækið en ekkert sé fast í hendi ennþá. „Við erum hálf hissa á því að ekki fleiri hafi sýnt þessu áhuga því maður hélt að það væru fleiri sem myndu vilja skapa sér vinnu á Akranesi í staðinn fyrir að vera að keyra til vinnu í bæinn. Það hefur marga kosti í stað þess að vera á þessum þvælingi í öllum veðrum til Reykjavíkur. Ég hélt að það yrði meiri áhugi en það breytist vonandi á næstunni.“