
Gróskumikil menning kristallast í styrkjum Uppbyggingarsjóðs
Styrkjum var úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands síðastliðinn föstudag. Var það gert við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi, þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar er einnig til húsa. Úthlutað var þrenns konar styrkjum; stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarmála, atvinnu- og nýsköpunarstyrkjum og menningarstyrkjum. Í þetta sinn var samtals úthlutað rúmum 46 milljónum króna og fram kom að síðar á árinu verði fleiri styrkir veittir til verkefna sem tengjast atvinnu og nýsköpun. Alls bárust 126 umsóknir nú og 75 af þeim fengu styrk, eða um 60%. Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) sagði við þetta tilefni að alltaf væri í gangi umræða um hvort það borgi sig frekar að veita háa styrki og færri frekar en fleiri styrki og lægri. En kannanir meðal styrkhafa sýndu að fólk væri nokkuð sátt þótt styrkveitingar væru ekki alveg í samræmi við umsóknir og frekar væri mælst til þess að fleiri en færri ættu möguleika á styrkjum.