Harður árekstur á Hvalfjarðarvegi

Skömmu fyrir klukkan 10 í morgun varð harður árekstur á Hvalfjarðarvegi (47). Viðbragðsaðilar voru kallaðir út á hæsta forgangi kl. 9:50, meðal annars tækjabíll slökkviliðs, sjúkraliðar og lögregla. Þá greinir fréttavefur RUV frá því að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út vegna slyssins og er nú á leið í Hvalfjörðinn.

Harður árekstur á Hvalfjarðarvegi - Skessuhorn