Hópurinn sem mætti á fyrri æfinguna. Ljósm. Árni

Mikill fjöldi mætti til stuðnings Gunnari Smára

Styrktaræfing var haldin fyrir Borgnesinginn Gunnar Smára Jónbjörnsson síðasta laugardag og fór hún fram í Ægi Gym á Akranesi og Metabolic í Borgarnesi. Vegna mikillar þátttöku voru tvær æfingar á Akranesi, sú fyrri klukkan tíu um morguninn og sú seinni klukkan 11.15. Alls mættu um 150 manns á æfingarnar í Ægi Gym og var einstaklega góð stemning í hópnum.

Mikill fjöldi mætti til stuðnings Gunnari Smára - Skessuhorn