Fréttir

true

Kviknaði í gám á grenndarstöð

Eftir hádegi í dag var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út. Þá var eldur í pappagám á grenndarstöð á bakvið verslun Krónunnar á Akranesi. Slökkvistarf gekk hratt og vel. Innihaldið í gámnum er hins vegar ekkert lengur og gáminn þarf að mála upp á nýtt. Um eldsupptök er ekki vitað.Lesa meira

true

Sigur hjá Skagamönnum en tap hjá Snæfelli

Lið ÍA gerði sér ferð á Flúðir síðasta föstudag og mætti Hrunamönnum í 1. deild karla í körfuknattleik. Hrunamenn byrjuðu mun betur í leiknum og voru komnir í 14:3 þegar fjórar mínútar voru liðnar af leiknum. Skagamenn virtust hálf ráðvilltir í fyrsta leikhluta og þegar ein mínúta var eftir af honum var staðan 30:16. En…Lesa meira

true

Gróskumikil menning kristallast í styrkjum Uppbyggingarsjóðs

Styrkjum var úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands síðastliðinn föstudag. Var það gert við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hjálmakletti í Borgarnesi, þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar er einnig til húsa. Úthlutað var þrenns konar styrkjum; stofn- og rekstrarstyrkjum til menningarmála, atvinnu- og nýsköpunarstyrkjum og menningarstyrkjum. Í þetta sinn var samtals úthlutað rúmum 46 milljónum króna og fram kom…Lesa meira

true

Hægt að nálgast glænýjan ferskan fisk hjá G.Run

Undanfarna mánuði hefur verið hægt að nálgast glænýjan og ferskan fisk í anddyri fiskvinnslufyrirtækisins G.Run hf í Grundarfirði. Þær Hólmfríður Hildimundardóttir og Rósa Guðmundsdóttir hafa borið hita og þunga af þessari þjónustu frá upphafi. „Við vorum oft búin að ræða þetta innan fyrirtækisins áður en við létum til skarar skríða,“ segir Hólmfríður í stuttu spjalli…Lesa meira

true

Styrkjum úthlutað til nýsköpunar í skólastarfi

Mennta- og barnamálaráðuneytið úthlutaði í síðustu viku styrkjum til nýsköpunar- og skólaþróunarverkefna á vettvangi leik-, grunn- og framhaldsskóla auk frístundastarfs. Um nýja tímabundna styrki er að ræða til að innleiða aðgerð-2 í menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030 um aukna skólaþróun um allt land. „Markmið styrkja er að stuðla að öflugri skólaþróun með fjölbreyttum verkefnum sem…Lesa meira

true

Birta þrívíddarlíkan af gosinu eins og það var síðdegis í gær

Landmælingar Íslands og Náttúrufræðistofnun hafa birt þrívíddarlíkön af gossvæðinu norðan við Grindavík. Notað var svokallað myndmælingateymi til að vinna líkanið, sem byggir á myndefni sem var tekið úr flugvél og myndmælt í forritinu Agisoft Metashape. Líkanið var unnið í samstarfi við Almannavarnir og Háskóla Ísland og sýnir gosstöðvarnar eins og þær voru klukkan 16:20 í…Lesa meira

true

Þungatakmörkunum aflétt klukkan 10 í dag

Í ljósi þess að nú hefur kólnað og þornað í veðri hefur Vegagerðin ákveðið að; „þeim sérstöku takmörkunum á ásþunga sem verið hafa í gildi á vegum á Vestfjörðum og Vesturlandi verður aflétt í dag, mánudaginn 15. janúar klukkan 10:00 og Viðauki 1 því í gildi á ný á þeim vegum sem við á.“Lesa meira

true

Upplýsingavefurinn; Að eldast

Upplýsingar um hvað eina sem tengist þjónustu fyrir eldra fólk hér á landi, réttindi þess og heilsueflingu má nú í fyrsta sinn nálgast á einum stað á vefnum island.is undir heitinu: „Að eldast.“ Hingað til hafa upplýsingarnar verið dreifðar hér og þar og gjarnan verið flókið fyrir eldra fólk og aðstandendur þess að nálgast þær.…Lesa meira

true

Söngbræður fylltu Þinghamar að venju

Síðastliðið laugardagskvöld bauð karlakórinn Söngbræður til árlegrar söng- og matarveislu í félagsheimilinu Þinghamri í Borgarfirði. Uppselt var á samkomuna og komust raunar færri að en vildu, þrátt fyrir að þetta sé stærsta félagsheimili héraðsins. Dagskráin hófst og endaði með söng undir stjórn Viðars Guðmundssonar sem kynnti atriðin og fór með gamanmál. Einsöngvarar stigu fram og…Lesa meira

true

Ný gossprunga opnaðist rétt við efstu hús í Grindavík

Nú í hádeginu opnaðis ný gossprunga einungis nokkrum tugum norðan við efstu hús í hinu nýja Hópshverfi í Grindavík. Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur, sagði nú rétt í þessu að Grindavík væri mikið hættusvæði eins og stendur. Kvika sé að finna sér leið upp á yfirborðið sem hafi áhrif á allt svæðið. Meðfylgjandi er skjáskot úr vefmyndavél…Lesa meira