Fréttir

true

Ísland hefur leik á EM síðdegis í dag

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar sinn fyrsta leik á EM 2024 í Þýskalandi í dag. Mótherji dagsins er Serbía en liðin eru í C-riðli ásamt Ungverjalandi og Svartfjallalandi. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Mikillar eftirvæntingar gætir fyrir þennan fyrsta leik liðsins og jafnframt fyrsta stórleik þess undir stjórn þjálfarans…Lesa meira

true

Héldu upplýsingafund um stöðu Jaðarsbakkaverkefnis

Íbúafundur á vegum bæjarstjórnar Akraness varðandi skipulagsmál á Jaðarsbökkum var haldinn síðasta miðvikudagskvöld í húsnæði Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni á Dalbraut 4. Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnisins og það sem framundan er í skipulagsvinnunni, ásamt því að íbúum gafst kostur á að spyrja bæjarfulltrúa út í málið. Haraldur Benediktsson var…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar reiðubúin að endurskoða gjaldskrárhækkanir

Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar í gær var lagt fram minnisblað með bókunum þriggja sveitarfélaga; Akraneskaupstaðar, Hrunamannahrepps og Dalvíkurbyggðar, vegna þjóðarsáttar um gerð kjarasamninga til næstu ára. Smám saman fjölgar í þeim hópi sveitarfélaga sem vilja leggja sitt af mörkum og síðast bættist Borgarbyggð við í þann hóp. Bókað var á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar að fylgjast…Lesa meira

true

Ók á bifreið og á hús

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku var tilkynnt um rásandi aksturslag ökumanns. Við afskipti lögreglu reyndist hann í annarlegu ástandi og er grunaður um ölvun við akstur en hann reyndist hafa ekið á að minnsta kosti eina bifreið og hús. Viðkomandi hlaut smávægilega áverka en slys urðu ekki á öðru fólki. Þá var…Lesa meira

true

Breyta húsnæði Prentmets í íbúðir

Á fundi bæjarstjórnar Akraness síðasta þriðjudag var tekin fyrir umsókn lóðarhafa, Lyngháls 1, um breytingu á deiliskipulagi Akratorgsreits vegna lóðarinnar Heiðargerði 22 þar sem fyrirtækið Prentmet var áður til húsa. Í breytingunni felst breyting á atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og er gert ráð fyrir sex íbúðum á einni hæð í núverandi byggingu. Íbúðir verða frá 42…Lesa meira

true

Formlegar viðræður hafnar um sameiningu tveggja háskóla

Í kjölfar fýsileikagreiningar Háskólans á Akureyri (HA) og Háskólans á Bifröst um aukið samstarf og mögulega sameiningu hafa háskólaráð HA og stjórn Háskólans á Bifröst nú ákveðið að ganga til sameiningarviðræðna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneyti háskólamála. Þar segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fagna niðurstöðu háskólanna sem komi í framhaldi af öflugu samstarfi…Lesa meira

true

Efla eykur þjónustu á Vesturlandi

Verkfræðistofan Efla opnaði formlega um áramótin starfsstöð á Vesturlandi. Orri Jónsson, starfsmaður EFLU á Hvanneyri, verður svæðisstjóri á Vesturlandi. Fyrir er Efla með starfsstöðvar í Reykjanesbæ, á Suðurlandi, Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum. Undanfarin fjögur ár hefur Efla verið með skrifstofu á Hvanneyri og hafa umsvifin á svæðinu aukist jöfnum höndum þann tíma. „Með því að…Lesa meira

true

Skallagrímur auglýsir eftir þjálfara meistaraflokks

Knattspyrnudeild Skallagríms í Borgarnesi er um þessar mundir að auglýsa eftir þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins sem leikur í 4. deild næsta sumar annað árið í röð. Félagið lauk keppni á síðasta tímabili í 8. sæti og stefnan vafalaust að enda ofar á þessu tímabili. Jón Theodór Jónsson framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar segir að auglýsing hafi verið send…Lesa meira

true

Módelin hans Guðmundar á nýrri sýningu í Safnahúsi

Í dag klukkan 16-18 verður opnun á nýrri sýningu í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi. Þar sýnir Guðmundur Stefán Guðmundsson leikfangasafn sitt, en á sýningunni verða um 60 munir. „Ég hef keypt flest þessara tækja í Kaupfélaginu hér í Borgarnesi en einnig hjá Jötunvélum á Selfossi. Mér þykir mjög gaman að safna svona tækjum,“ segir hann…Lesa meira

true

Krossgátan öll

Smávægileg mistök voru gerð við umbrot á krossgátu í Skessuhorni sem kom út í gær. Efst og af hægri hlið skárust tvær línur. Hér að neðan má sjá hana í heild sinni fyrir þá sem vilja ljúka við að leysa hana og senda inn lausn. Krossgáta er birt í Skessuhorni aðra hverja viku. Þeir sem…Lesa meira