Fréttir

true

„Það er mennskan, að hafa samskipti við fólk“

Farið yfir málin með Hrafnhildi Hallvarðsdóttur í Stykkishólmi Hrafnhildur Hallvarðsdóttir kom aftur á heimaslóðir eftir að hafa á yngri árum farið til Reykjavíkur í skóla. Hún gegnir í dag margvíslegu hlutverki á Snæfellsnesi sem forseti bæjarstjórnar í Sveitarfélaginu Stykkishólmi og skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Bæði þessi störf gefa henni mikið, enda hefur hún bæði…Lesa meira

true

Móðir og dóttir skiptust á lyklum

Á miðnætti í lok allra síðasta dags liðins árs tók Oddný Eva Böðvarsdóttir við starfi yfirhjúkrunarfræðings á heilsugæslunni í Borgarnesi. Það væri samt ekki endilega í frásögur færandi nema vegna þess að hún tók við embættinu af móður sinni Rósu Marinósdóttur sem er að hætta störfum á heilsugæslustöðinni eftir fjörutíu ára farsælt starf. Rósa birti…Lesa meira

true

Árið byrjaði vel hjá bátunum á Breiðafirði

Nýja árið byrjaði vel til sjósóknar í Snæfellsbæ; gott veður og góð aflabrögð. Mjög hátt verð var á fiskmörkuðum, eða 586 króna meðalverð fyrir óslægðan þorsk og ýsan seldist á 413 krónur. Hjörtur Sigurðsson skipstjóri á línubátnum Kviku SH var mjög ánægður með aflabrögðin eða um átta tonn af bolta fiski. „Við erum bara með…Lesa meira

true

Óskar kemur í stað Kristjáns á Nýárstónleikum í kvöld

Kór Akraneskirkju heldur Vínartónleika í kvöld í Bíóhöllinni á Akranesi og þar kemur fram einvalalið tónlistarfólks. Björg Þórhallsdóttir sópran, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran og hljóðfæraleikarnir Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari, Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikara. Kristján Jóhannsson tenór átti einnig að koma fram á tónleikunum en þurfti frá að hverfa…Lesa meira

true

Víða er flughált á vegum, götum og göngustígum

Eftir að hlýna tók í gærmorgun varð flughált á vegum, götum og göngustígum á Vesturlandi þar sem snjór varð að svelli. Full ástæða er til að hvetja fólk til að aka varlega og ekki síður að fara varlega á gönguferðum þar sem göngustígar hafa ekki verið hreinsaðir. Á umferdin.is má sjá að víða er hált…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Snæfells í hús

Eftir að hafa tapað tólf leikjum í röð fyrir áramót í Subway deild kvenna í körfuknattleik náði Snæfell loks sigri á þessu tímabili í fyrsta leik á nýju ári. Liðið tók á móti Fjölni í Stykkishólmi í gærkvöldi og hafði að lokum nauman sigur í spennuleik. Fyrir leik var Snæfell án stiga og Fjölnir með…Lesa meira

true

Grundarfjarðarbær gefur nýjum íbúum gjafir

Grundarfjarðarbær boðaði nýbakaða foreldra árið 2023 til fundar við sig á gamlársdag í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar afhenti Björg Ágústsdóttir, fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar, nýjustu íbúum bæjarins veglegar gjafir í samvinnu við Leikskólann Sólvelli, Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Kjörbúðina. Alls fæddust sjö börn á árinu og sex þeirra voru mætt við afhendinguna. Einnig voru sjálfboðaliðar heiðraðir þennan dag…Lesa meira

true

Vestlendingar ársins 2023 starfa að mannúðarmálum

Í byrjun desember auglýsti Skessuhorn eftir tilnefningum frá íbúum í landshlutanum um hver skyldi hljóta sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2023; hver væri sá íbúi sem hefði á einhvern hátt skarað fram úr á árinu. Þetta er í 26. skipti sem Skessuhorn gengst fyrir þessari útnefningu og í áranna rás hefur fjöldi fólks víðs vegar um landshlutann…Lesa meira

true

Dvalarheimilið Fellaskjól fær veglega gjöf

Eygló Guðmundsdóttir var einn af fyrstu starfsmönnum Fellaskjóls í Grundarfirði þegar það var opnað þann 1. desember árið 1988. Nú er hún ein af íbúum heimilisins og nýtur sín við leik og störf ásamt öðrum íbúum. Þann 30. desember síðastliðinn færði hún heimilinu veglega gjöf sem mun nýtast vel og auka þjónustu við íbúa. Þetta…Lesa meira

true

Söngbræður boða til árlegrar sviða- og söngveislu

Karlakórinn Söngbræður heldur sína árlegu, þjóðlegu sviða- og hrossakjötsveislu í Þinghamri á Varmalandi í Stafholtstungum laugardaginn 13. janúar næstkomandi kl. 20:00. Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar eins kórmeðlima er vonast til að sem allra flestir sjái sér fært að koma og eiga góða kvöldstund með kórnum sem oftar. Söngbræður munu syngja, einhverjir verða með gleðimál…Lesa meira