
Á Akranesi í morgun. Ljósm. María Þórunn Friðriksdóttir
Víða er flughált á vegum, götum og göngustígum
Eftir að hlýna tók í gærmorgun varð flughált á vegum, götum og göngustígum á Vesturlandi þar sem snjór varð að svelli. Full ástæða er til að hvetja fólk til að aka varlega og ekki síður að fara varlega á gönguferðum þar sem göngustígar hafa ekki verið hreinsaðir. Á umferdin.is má sjá að víða er hált eða flughált á vegum, ekki síst á sveitavegum sem lítið eða ekkert hafa verið hreinsaðir af snjó. „Flughálka er í Dölum, Laxárdal og víða á öðrum leiðum, annars hálka eða hálkublettir,“ segir á umferdin.is
Vegagerðin bendir einnig á að víða hafa myndast holur á Vestfjarðavegi (60), frá Bröttubrekku að Gilsfirði. Þar þarf að sýna aðgát.