Vestlendingar ársins 2023. F.v. Andrea Þ Björnsdóttir, María Ólafsdóttir og Margrét Katrín Guðnadóttir. Ljósm. mm

Vestlendingar ársins 2023 starfa að mannúðarmálum

Í byrjun desember auglýsti Skessuhorn eftir tilnefningum frá íbúum í landshlutanum um hver skyldi hljóta sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2023; hver væri sá íbúi sem hefði á einhvern hátt skarað fram úr á árinu. Þetta er í 26. skipti sem Skessuhorn gengst fyrir þessari útnefningu og í áranna rás hefur fjöldi fólks víðs vegar um landshlutann hlotnast þessi heiður af ýmsum og býsna ólíkum ástæðum. Nú sem fyrr lögðu íbúar lóð á vogarskálina og ber að þakka fjölmargar tilnefningar sem bárust.

Vestlendingar ársins 2023 starfa að mannúðarmálum - Skessuhorn