
Foreldrar nýrra íbúa bæjarins ásamt Björgu Ágústsdóttur bæjarstjóra. Ljósm. tfk
Grundarfjarðarbær gefur nýjum íbúum gjafir
Grundarfjarðarbær boðaði nýbakaða foreldra árið 2023 til fundar við sig á gamlársdag í Samkomuhúsi Grundarfjarðar. Þar afhenti Björg Ágústsdóttir, fyrir hönd Grundarfjarðarbæjar, nýjustu íbúum bæjarins veglegar gjafir í samvinnu við Leikskólann Sólvelli, Heilbrigðisstofnun Vesturlands og Kjörbúðina. Alls fæddust sjö börn á árinu og sex þeirra voru mætt við afhendinguna. Einnig voru sjálfboðaliðar heiðraðir þennan dag ásamt því að verðlaun voru veitt fyrir íþróttamann Grundarfjarðarbæjar.