Björg og Hanna Þóra ásamt Óskari á æfingunni í gærkvöldi. Ljósm. Bryndís Böðvarsdóttir

Óskar kemur í stað Kristjáns á Nýárstónleikum í kvöld

Kór Akraneskirkju heldur Vínartónleika í kvöld í Bíóhöllinni á Akranesi og þar kemur fram einvalalið tónlistarfólks. Björg Þórhallsdóttir sópran, Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópran og hljóðfæraleikarnir Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari, Sigurður Ingvi Snorrason klarinettuleikari, Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikara. Kristján Jóhannsson tenór átti einnig að koma fram á tónleikunum en þurfti frá að hverfa vegna veikinda. Hinn eini sanni Álftagerðisbróðir Óskar Pétursson mun koma í stað Kristjáns Jóhannsonar á tónleikunum í kvöld. Hann brunaði að norðan í gær og náði glimrandi æfingu í gærkvöldi ásamt þeim Björgu og Hönnu Þóru, hljómsveitinni góðu og að sjálfsögðu Kór Akraneskirkju.

Óskar kemur í stað Kristjáns á Nýárstónleikum í kvöld - Skessuhorn