Fréttir

true

Gera tilraun til þjóðarsáttar á vinnumarkaði

Samtök atvinnulífsins ásamt fulltrúum breiðrar fylkingar launþegafélaga í landinu hafa snúið bökum saman og stefna að því að ná langtíma kjarasamningi. Að því er stefnt til að auka líkur á fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu á næstu misserum og árum. Samningsaðilar ákváðu þetta á fundi sínum fyrir jól og undirstrikuðu á fundi sem fram fór…Lesa meira

true

Vínartónleikar Kórs Akraneskirkju verða 3. janúar

Kór Akraneskirkju heldur Vínartónleika í Bíóhöllinni á Akranesi miðvikudaginn 3. janúar, klukkan 20. „Þetta verða hátíðartónleikar, síðkjólar og dans, í samvinnu kórsins, Bíóhallarinnar og Kalman listafélags,“ segir í tilkynningu. Kórinn hefur fengið til liðs við sig einvalalið tónlistarfólks; Björgu Þórhallsdóttur sópran, Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur sópran, Kristján Jóhannsson tenór og hljóðfæraleikarana Sigrúnu Eðvaldsdóttur fiðluleikara, Sigurð Ingva…Lesa meira

true

Norðurljósahátíðin verður næsta haust

Safna- og menningarmálanefnd Sveitarfélagsins Stykkishólms hefur lagt til að Norðurljósahátíðin verði haldin dagana 24.-27. október á næsta ári. Um er að ræða menningarhátíð sem var fyrst haldin í Stykkishólmi í nóvember árið 2010 og hefur verið haldin annað hvert ár síðan, síðast árið 2022. Hún var á sínum tíma sett á fót á vegum safna-…Lesa meira

true

Tíu efstu í kjöri Íþróttamanneskju Borgarfjarðar 2023

Átján tilnefningar bárust UMSB fyrir kjör á Íþróttamanneskju Borgarfjarðar 2023. Atkvæðagreiðslu er nú lokið og því ljóst hvaða íþróttafólk er í efstu tíu sætunum. Kjörinu verður lýst kl. 15:00 á þrettándanum, laugardaginn 6. janúar, í Hjálmakletti í Borgarnesi. Tíu efstu (í stafrófsröð): Bjarki Pétursson – Golf Bjarni Guðmann Jónsson – Körfuknattleikur Brynjar Snær Pálsson –…Lesa meira

true

Fjórtán í kjöri til Íþróttamanns Akraness 2023

Kosning í kjöri á Íþróttamanni Akraness 2023 er hafin inni á vefsíðunni akranes.is Þátttakendur þurfa að auðkenna sig í innskráningu með rafrænum skilríkjum eða íslykli. Kosningin nær einungis til svæðis undir póstnúmeri 300 og getur hver þátttakandi aðeins kosið einu sinni. Hér að neðan eru þeir sem tilnefndir eru þetta árið. 13 félög tilnefna að…Lesa meira

true

Alexander Örn kraftlyftingakarl ársins 2023

Skagamaðurinn Alexander Örn Kárason og Sóley Margrét Jónsdóttir voru valin kraftlyftingafólk ársins 2023 en þetta var tilkynnt á fundi Kraftlyftingasambands Íslands 20. desember síðastliðinn. Alexander Örn er sonur Kára Steins Reynissonar og Elínar Bjarkar Davíðsdóttur. Alexander Örn hlýtur nafnbótina í fyrsta sinn en hann er 25 ára gamall og keppir fyrir Kraftlyftingadeild Breiðabliks. Alexander sem…Lesa meira

true

Þrjár tilnefningar í kjöri íþróttamanns Grundarfjarðar 2023

Þrjár tilnefningar bárust til kjörs á íþróttamanni Grundarfjarðar árið 2023 og verða úrslitin gerð kunn við hátíðlega athöfn í Samkomuhúsinu á gamlársdag, sunnudaginn 31. desember klukkan 11. Við sama tækifæri verða sjálfboðaliðar heiðraðir fyrir störf í þágu íþrótta- og tómstundamála í Grundarfirði og sængurgjöf samfélagsins afhent foreldrum barna sem fæddust árið 2023. Þær þrjár tilnefningar…Lesa meira

true

Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekjumarka vegna hlutdeildarlána

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekjumarka vegna hlutdeildarlána fyrir árið 2024. Um er að ræða tekjumörk vegna hlutdeildarlána sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Frá og með 1. janúar…Lesa meira

true

Gula treyjan á götum Gana

Knattspyrnukonan Samira Suleman, sem hefur spilað með ÍA síðustu tvö tímabil, fór til heimalandsins Gana í frí yfir jólin. Þangað fór hún með nokkrar fullar ferðatöskur með knattspyrnuvarningi þar sem guli litur Skagamanna var áberandi í töskunum. Verkefnið ber nafnið The Coach Mira Project og er tilgangurinn að gefa börnum sem minna mega sín knattspyrnuvarning…Lesa meira

true

Útskrift hjá Menntaskóla Borgarfjarðar

Tíu nemendur úr Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi útskrifuðust með stúdentspróf skömmu fyrir jól. Hefð er fyrir því að nemendur sem útskrifast á haustönn útskrifast formlega frá skólanum við hátíðlega athöfn að vori. Nemendur koma þó við þessi tímamót í skólann og taka á móti sínum skírteinum og njóta samveru með starfsfólki.Lesa meira