
Hestakonan Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir var íþróttamaður Grundarfjarðar árin 2021 og 2022. Ljósm. grundarfjordur.is
Þrjár tilnefningar í kjöri íþróttamanns Grundarfjarðar 2023
Þrjár tilnefningar bárust til kjörs á íþróttamanni Grundarfjarðar árið 2023 og verða úrslitin gerð kunn við hátíðlega athöfn í Samkomuhúsinu á gamlársdag, sunnudaginn 31. desember klukkan 11. Við sama tækifæri verða sjálfboðaliðar heiðraðir fyrir störf í þágu íþrótta- og tómstundamála í Grundarfirði og sængurgjöf samfélagsins afhent foreldrum barna sem fæddust árið 2023.