
Menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar fór í sína árlegu jólahúsaleit 20. desember síðastliðinn og fann jólahúsið fyrir árið 2023. Á Grundargötu 27, við miðja aðalgötu bæjarins, stendur sannkallað jólahús. Með fallegum seríum og fígúrum sem lýsa upp skammdegið og veita birtu og yl á jólahátíðinni. Það eru hjónin Þóra Ólöf Óskarsdóttir og Pétur Hraunfjörð sem búa í jólahúsinu…Lesa meira








