
Krónan og viðskiptavinir studdu 30 fjölskyldur á Akranesi
Nú skömmu fyrir jól afhenti Krónan Mæðrastyrksnefnd Akraness 30 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Þá bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar á Akranesi, ásamt Krónunni, söfnuðu alls 600 þúsund krónum en samtals söfnuðust 12 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar um allt land.