Fréttir

true

Eftirvæntingar gætir vegna nýársávarps forseta

Mikillar eftirvæntingar gætir hjá mörgum landsmönnum vegna nýársávarps Guðna Th. Jóhannessonar forseta klukkan 13 í dag. Hann hefur sagt áður að þá muni hann gefa það út hvort hann bjóði sig fram til að gegna embætti forseta þriðja kjörtímabilið. Guðni var eins og kunnugt er kosinn forseti Íslands vorið 2016 og náði svo yfirburðakosningu 2020.…Lesa meira

true

Ábending vegna lausna á Jólakrossgátu Skessuhorns

Þeim sem vilja senda inn lausnir á Krossgátunni í Jólablaði Skessuhorns, er bent á að ekki voru að þessu sinni númeraðir reitir til að finna lausnarorð. Til að taka þátt í getrauninni er hægt að: A) taka ljósmynd af útfylltri krossgátu og senda á netfangið krossgata@skessuhorn.is eða B) klippa hana út úr blaðinu og senda…Lesa meira

true

Eldur kom upp á veitingastaðnum Útgerðinni

Klukkan 23:11 í kvöld var allt tiltækt lið Slökkviliðs Akraness og Hvaljarðarsveitar kallað út að veitingastaðnum Útgerðinni við Stillholt 16-18 á Akranesi. Þar reyndist staðbundinn eldur á salerni og lagði mikinn reyk út um glugga. Staðurinn var mannlaus. Að sögn Jens Baldurs Ragnarssonar slökkviliðsstjóra gekk vel að ráða niðurlögum eldsins og í framhaldinu var staðurinn…Lesa meira

true

Gleðilegt ár og þakkir fyrir 2023

“Nú árið er liðið í aldanna skaut…” Við þessi tímamót þakkar starfsfólk Skessuhorns – fréttaveitu Vesturlands, íbúum og lesendum miðla okkar um heim allan, gleðilegs og gjöfuls árs 2024. Hafið kæra þökk fyrir viðburðaríkt og skemmtilegt ár sem nú er að kveðja.Lesa meira

true

Hátíðartónar hljóma í Akraneskirkju síðdegis í dag

Klukkan 16 í dag verða tónleikar í Akraneskirkju þar sem þeir Hilmar Örn Agnarsson og Jóhann Stefánsson spila á orgel og trompet klassísk hátíðarlög. Þeim til fulltingis verða sópran söngkonurnar Ásta Marý Stefánsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir. Þá munu einnig gestablásarar taka þátt á tónleikunum. Aðgangur er ókeypis og tilvalið að enda árið með góðum og…Lesa meira

true

Fengu ríga þorsk norðarlega á Flákanum í veiðiferð gærdagsins

Þeir Örvar Marteinsson og Vignir Hauksson skipverjar á Sverri SH frá Ólafsvík fengu laglega jólagjöf í gær þegar þeir héldu í nokkra langferð og lögðu línuna norðarlega á Flákanum. Lögðu þeir 24 bala og fengu um 12 tonn af ríga þorski, eða um 500 kíló á hvern bala sem telst mokveiði. Þeir félagar voru að…Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarsveitanna er byrjuð

„Salan fer bara prýðilega af stað hjá okkur, en við byrjuðum hana á fimmtudaginn,“ sagði Kristín Frímannsdóttir sem í gærkvöldi stóð vaktina í flugeldasölunni hjá björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi. Brák og björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði stilla sem fyrr saman strengi í sölunni og eru með starfsemina í nýju björgunarmiðstöð Brákar við Fitjar. „Stærstu söludagarnir eru…Lesa meira

true

Auknar líkur taldar á að gjósi norðan við Grindavík

Landris heldur áfram við Svartsengi og eru auknar líkur taldar á eldgosi norðan Grindavíkur. Veðurstofa Íslands gaf út nýtt hættumatskort í gær sem gildir til 5. janúar að öllu óbreyttu.  Samkvæmt núgildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gosmengun. „Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara og…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður vill endurskoða gjaldskrárhækkanir komi til þjóðarsáttar

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar frétta um samflot verkalýðshreyfingar og Samtaka atvinnulífsins í aðdraganda kjaraviðræðna. Þar kemur fram að kaupstaðurinn lýsir sig reiðubúinn að endurskoða boðaðar gjaldskrárhækkanir á næsta ári, komi til kjarasamninga sem byggi á sátt um að ná niður verðbólgu og vöxtum. Yfirlýsingin er svohljóðandi í heild sinni: „Bæjarstjórn…Lesa meira

true

Starfsemi fiskmarkaðarins á Akranesi í skoðun

Böðvar Ingvason hefur séð um allan daglegan rekstur sem verktaki í útibúi Fiskmarkaðar Snæfellsbæjar á Akranesi frá því í október 2018, eða í rúm fimm ár. Fyrir smábátaeigendur er gríðarlega mikilvægt að þurfa ekki að sigla langt með aflann til löndunar og þjónusta fiskmarkaðar í heimahöfn getur því skipt sköpum um útgerð. En nú eru…Lesa meira