Grindavík. Ljósm. mm

Auknar líkur taldar á að gjósi norðan við Grindavík

Landris heldur áfram við Svartsengi og eru auknar líkur taldar á eldgosi norðan Grindavíkur. Veðurstofa Íslands gaf út nýtt hættumatskort í gær sem gildir til 5. janúar að öllu óbreyttu.  Samkvæmt núgildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gosmengun. „Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara og dvelja heima hjá sér þar til breytingar á hættumatskorti gefa tilefnis til annars, sem gæti gerst með skömmum fyrirvara. Þó ráðleggur lögreglustjóri íbúum frá því að dvelja í bænum við núverandi aðstæður,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Lögreglustjóri ítrekar sérstaklega að eldgos getur hafist í nágrenni Grindavíkur með stuttum fyrirvara. „Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inni á hættusvæði.  Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð. Björgunarsveitir sinna útköllum með venjubundnum hætti. Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112.

Hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta: RÝMING RÝMING!  Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð.  RÝMING RÝMING …….  EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.

Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn. Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum. Mögulegar flóttaleiðir:  Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.“

Auknar líkur taldar á að gjósi norðan við Grindavík - Skessuhorn