
Fyrir tæpum þremur árum dvaldi sagnfræðingurinn Guðni Th Jóhannesson í Reykholti og nýtti gestastofu Snorrastofu til fræðistarfa. „Ég nýti tímann í kyrrð sveitarinnar til að grúska í sagnfræði en einnig til að undirbúa ræðuskrif sem einatt fylgja embættisfærslu forseta,“ sagði hann í samtali við blaðamann Skessuhorns. Ljósm. mm
Eftirvæntingar gætir vegna nýársávarps forseta
Mikillar eftirvæntingar gætir hjá mörgum landsmönnum vegna nýársávarps Guðna Th. Jóhannessonar forseta klukkan 13 í dag. Hann hefur sagt áður að þá muni hann gefa það út hvort hann bjóði sig fram til að gegna embætti forseta þriðja kjörtímabilið. Guðni var eins og kunnugt er kosinn forseti Íslands vorið 2016 og náði svo yfirburðakosningu 2020. Kjörtímabilinu lýkur í sumar.