Flugeldasala björgunarsveitanna er byrjuð

„Salan fer bara prýðilega af stað hjá okkur, en við byrjuðum hana á fimmtudaginn,“ sagði Kristín Frímannsdóttir sem í gærkvöldi stóð vaktina í flugeldasölunni hjá björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi. Brák og björgunarsveitin Heiðar í Borgarfirði stilla sem fyrr saman strengi í sölunni og eru með starfsemina í nýju björgunarmiðstöð Brákar við Fitjar. „Stærstu söludagarnir eru hins vegar í dag og á morgun, gamlársdag. Við verðum með opið hér frá klukkan 10-22 í dag og á morgun Gamlársdag frá kl. 10-16,“ sagði Þorvaldur Ásberg Kristbergsson félagsmaður í Heiðari þegar blaðamaður kíkti við. Valdi var að leiðbeina áhugasömum fjölskyldum um flugeldakaupin. Sumir völdu fáa og stærri flugelda eða skottertur meðan börnin vildu fremur kassa með allskonar smádóti í. Fyrir þá sem ekki vilja kaupa flugelda er bent á að til sölu eru Rótarskot en með kaupum á þeim er starf björgunarsveitanna styrkt með beinum hætti.

Flugeldasala björgunarsveitanna er byrjuð - Skessuhorn