
Hækkun viðmiðunarfjárhæða tekjumarka vegna hlutdeildarlána
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur gefið út uppfærðar viðmiðunarfjárhæðir tekjumarka vegna hlutdeildarlána fyrir árið 2024. Um er að ræða tekjumörk vegna hlutdeildarlána sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Frá og með 1. janúar 2024 eru uppreiknuð tekjumörk þeirra sem sótt geta um hlutdeildarlán eftirfarandi: