
Samira ásamt gulum og glöðum Ganadrengjum. Ljósm. kfía
Gula treyjan á götum Gana
Knattspyrnukonan Samira Suleman, sem hefur spilað með ÍA síðustu tvö tímabil, fór til heimalandsins Gana í frí yfir jólin. Þangað fór hún með nokkrar fullar ferðatöskur með knattspyrnuvarningi þar sem guli litur Skagamanna var áberandi í töskunum.