Þessi mynd var tekin af forsvarsmönnum samflotsins fyrir jól. Þarna eru Hilmar Harðarson formaður Samiðnar – sambands iðnfélaga, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar stéttarfélags, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands, en þau sátu óformlegan fund með Samtökum atvinnulífsins í húsnæði ríkissáttasemjara fyrir jól og annan slíkan fund 28. desember. Á myndina vantar Eið Stefánsson frá Landsambandi íslenzkra verzlunarmanna. Ljósm. vr.is

Gera tilraun til þjóðarsáttar á vinnumarkaði

Samtök atvinnulífsins ásamt fulltrúum breiðrar fylkingar launþegafélaga í landinu hafa snúið bökum saman og stefna að því að ná langtíma kjarasamningi. Að því er stefnt til að auka líkur á fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu á næstu misserum og árum. Samningsaðilar ákváðu þetta á fundi sínum fyrir jól og undirstrikuðu á fundi sem fram fór í gærmorgun. Lögð er áhersla á stöðugleika fremur en mikla hækkun launa gangi þessar áætlanir eftir.

Gera tilraun til þjóðarsáttar á vinnumarkaði - Skessuhorn