Fréttir

true

Jólablað Skessuhorns gefið út í byrjun næstu viku

Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku. Verður það prentað á mánudagskvöldi og fer í dreifingu degi fyrr en hefðbundið blað, þriðjudaginn 19. desember. Það er gert til að það nái til áskrifenda í tæka tíð fyrir hátíðirnar. Blaðið, sem jafnframt verður síðasta tölublað ársins, verður stútfullt af áhugaverðu efni; svo sem viðtölum við á…Lesa meira

true

Jóla sprettur í pútti

Pútthópurinn í Borgarbyggð, sem æfir í kjallara Menntaskólans, reynir að hafa einhverja tilbreytni öðru hverju í starfi sínu. Af því tilefni var nýverið efnt til einpútts útsláttarkeppni. Þar léku tveir og tveir 18 holur og sá sem varð undir var úr leik. Þar sem aðeins 14 skráðu sig til leiks var gripið til þess ráðs…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um kaup La Dolce Vita á félagsheimilinu á Staðarfelli

Fyrirtækið La Dolce Vita ehf., sem er í eigu Baldurs Ingvarssonar staðarhaldara á Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum, hefur nú fest kaup á félagsheimilinu að Staðarfelli. Samningur var undirritaður föstudaginn 8. desember. Seljendur eru Dalabyggð, Kvenfélagið Hvöt og Ungmennafélagið Dögun. Félagsheimilið að Staðarfelli hefur verið miðpunktur og grundvöllur félagslífs á Fellsströndinni um áratugaskeið. Þar hefur…Lesa meira

true

Ekið á gangandi vegfaranda

Afskipti voru höfð af 15 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Einnig voru meint hraðabrot mynduð hjá 55 ökumönnum til viðbótar með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Þá voru höfð afskipti af nokkrum ökumönnum sem ekki voru með ökuréttindi í gildi eða höfðu áður verið sviptir ökurétti. Nokkrir ökumenn voru…Lesa meira

true

Sýslumaður NV tekur yfir verkefni Innnheimtustofnunar sveitarfélaga

Verkefni Innheimtustofnunar sveitarfélaga verða færð til Sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Það sýslumannsembætti þótti dómsmálaráðherra vænlegur valkostur fyrir móttöku verkefnisins vegna samlegðar við önnur sérverkefni þess, svo sem innheimtumiðstöðvarinnar á Blönduósi sem er á ábyrgð embættisins. Dómsmálaráðuneytið og innviðaráðuneytið hafa unnið að þessum breytingum í sameiningu þar sem það fellur vel að byggðaáætlun og sameiginlegum markmiðum…Lesa meira

true

Metnaður á sviði umhverfismála hjá Lögreglunni á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi stendur mjög framarlega í verkefninu Grænum skrefum og hefur á síðustu árum dregið verulega úr kolefnislosun með margvíslegum aðgerðum. Heildarlosun kolefnis í ár er áætluð 45-50% minni en viðmiðunarársins 2020 og áætlaður er frekari samdráttur á næsta ári eða allt að 75%. Síðastliðinn föstudag var því fagnað á starfsstöðinni í Borgarnesi að…Lesa meira

true

Óskað er eftir tilnefningum um Vestlending ársins

Skessuhorn stendur nú í 26. skipti fyrir vali á Vestlendingi ársins, þeim íbúa í landshlutanum sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2023. Skilyrði er að viðkomandi hafi búsetu á Vesturlandi. Íbúar landshlutans geta sent tilnefningar á ritstjórn Skessuhorns um Vestlending ársins á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is eigi síðar…Lesa meira

true

Þrír bræður kynntu jólasveinaverkefnið í Dölum

„Íslensku Jólasveinarnir eru úr Dölunum,“ er heiti á nýju verkefni sem Kruss ehf. er að hrinda af stað. Markmið þess er að kynna íslensku jólasveinana fyrir innlendum og erlendum ferðamönnum og tengja tilvist jólasveinanna beint við Dali, heimaslóðir þeirra. „Við viljum líka benda á þá staðreynd að ef skáldið og kennarinn, Jóhannes úr Kötlum, hefði…Lesa meira

true

Ný stofnun í stað Menntamálastofnunar

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem kemur í stað Menntamálastofnunar sem verður lögð niður frá 1. apríl 2024. Stofnunin mun starfa í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála og á að þjónusta leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu. „Miðstöð menntunar og skólaþjónustu…Lesa meira

true

Útkall í Borgarnesi og varað við hættum á ótraustum ís

Síðastliðinni sunnudag, um hálf þrjú leytið, fengu viðbragðsaðilar í Borgarnesi útkall vegna mögulegs slyss á ís í Sandvík sem er fyrir neðan ferðaþjónustubæinn Bjarg. Sést hafði til mannaferða úti á ísnum sem þá var á víkinni og talið að aðstoðar væri þörf. Góðu heilli reyndist það síðan ekki vera og útkallið var dregið til baka…Lesa meira