Séð út á Sandvíkina eins og aðstæður voru á sunnudaginn. Ljósm. Heiður Hörn.

Útkall í Borgarnesi og varað við hættum á ótraustum ís

Síðastliðinni sunnudag, um hálf þrjú leytið, fengu viðbragðsaðilar í Borgarnesi útkall vegna mögulegs slyss á ís í Sandvík sem er fyrir neðan ferðaþjónustubæinn Bjarg. Sést hafði til mannaferða úti á ísnum sem þá var á víkinni og talið að aðstoðar væri þörf. Góðu heilli reyndist það síðan ekki vera og útkallið var dregið til baka nokkrum mínútum síðar.

En umræða varð nokkur í bænum vegna þessa í kjölfarið, enda er er hann umlukinn sjó með tilheyrandi hættum fyrir börn. Slys hafa vissulega orðið vegna þessa gegnum tíðina og því mikilvægt að foreldrar leiðbeini börnum sínum í umgengni við sjó og kletta og brýni fyrir þeim að fara varlega. Heiður Hörn Hjartardóttir á Bjargi setti færslu inn á Borgarnesvefinn á Facebook um að annan daginn í röð hefði sést til manna og barna ganga út á ísinn á firðinum. Hún benti á að hann væri ekki traustur og skoraði á íbúa að taka samtalið heima vegna þessa svo allir gætu haldið gleðileg jól.

Útkall í Borgarnesi og varað við hættum á ótraustum ís - Skessuhorn