
Jólablað Skessuhorns gefið út í byrjun næstu viku
Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku. Verður það prentað á mánudagskvöldi og fer í dreifingu degi fyrr en hefðbundið blað, þriðjudaginn 19. desember. Það er gert til að það nái til áskrifenda í tæka tíð fyrir hátíðirnar. Blaðið, sem jafnframt verður síðasta tölublað ársins, verður stútfullt af áhugaverðu efni; svo sem viðtölum við á þriðja tug einstaklinga, kveðjum úr héraði, annál, jólaefni auk krossgátu og myndagáta. Vinnsla Jólablaðsins er nú vel á veg komin og hefst umbrot í þessari viku. Vakin er athygli á því að lokadagur til að panta auglýsingar í Jólablaðið er fyrir hádegi á morgun, fimmtudaginn 14. desember. Bent er á símann 433-5500 og auglysingar@skessuhorn.is Efni til birtingar sendist ritstjórn á netfangið; skessuhorn@skessuhorn.is