Þeir (f.v.) Kertasníkir, Skyrgámur og Bjúgnakrækir Grýlu- og Leppalúðasynir komu í morgun við á ritstjórn Skessuhorns og færðu starfsfólki brot af því matarhandverki sem framleitt er í Dölum. „Við treystum því að þú segir frá heimsókn okkar og gefir því gott pláss í Skessuhorni. Þetta er fallegt fjall og blaðið fríkkar sömuleiðis með mynd af okkur í því,“ sagði Skyrgámur.

Þrír bræður kynntu jólasveinaverkefnið í Dölum

„Íslensku Jólasveinarnir eru úr Dölunum,“ er heiti á nýju verkefni sem Kruss ehf. er að hrinda af stað. Markmið þess er að kynna íslensku jólasveinana fyrir innlendum og erlendum ferðamönnum og tengja tilvist jólasveinanna beint við Dali, heimaslóðir þeirra. „Við viljum líka benda á þá staðreynd að ef skáldið og kennarinn, Jóhannes úr Kötlum, hefði ekki samið jólasveinavísurnar um okkur, þá væru meiri líkur en minni á að við ættum bara einn okkar í dag, í stað þeirra 13 sem vísurnar eru bundnar við,“ segir Skyrgámur í samtali við Skessuhorn. Þeir bræður Kertasníkir, Skyrgámur og Bjúgnakrækir komu við á ritstjórn Skessuhorns í morgun á leið sinni til fundar við matvælaráðherra og forsetann á Bessastöðum. Í dag eru miklar annir að hefjast hjá þeim bræðrum, en Stekkjastaur var í nótt búinn að fara víða, stinnur eins og tré.

Þrír bræður kynntu jólasveinaverkefnið í Dölum - Skessuhorn