Óskað er eftir tilnefningum um Vestlending ársins

Skessuhorn stendur nú í 26. skipti fyrir vali á Vestlendingi ársins, þeim íbúa í landshlutanum sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2023. Skilyrði er að viðkomandi hafi búsetu á Vesturlandi. Íbúar landshlutans geta sent tilnefningar á ritstjórn Skessuhorns um Vestlending ársins á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is eigi síðar en 20. desember nk. Ritstjórn mun vinna úr ábendingum en tilkynnt verður um niðurstöðuna miðvikudaginn 3. janúar 2024. Gott er ef ábendingunum fylgi rökstuðningur í einni setningu eða svo.

Óskað er eftir tilnefningum um Vestlending ársins - Skessuhorn