Fréttir

true

Straumlaust á hluta Akraness í nótt

Vegna viðhalds Veitna á raforkukerfinu á Akranesi verður rafmagnslaust á tveimur svæðum í eldri hluta bæjarins aðfararnótt föstudagsins 1. desember frá klukkan 00:05 til kl. 04:00. Annars vegar er það við göturnar Suðurgötu, Sóleyjargötu, Háteig, Vitateig, Akursbraut og Hafnarbraut og hins vegar við Kirkjubraut, Akurgerði, Merkigerði, Heiðargerði, Víðigerði, Laugarbraut og Vesturgötu. (sjá meðfylgjandi tvö kort).…Lesa meira

true

Nemendur úr FSN stóðu sig vel í nýsköpunarkeppni

Uppskeruhátíð MEMA 2023 fór fram 23. nóvember síðastliðinn í sal Háskóla Íslands þar sem fjórtán teymi kepptu um að hljóta sigurtitil MEMA 2023. MEMA (Menntamaskína) er nýsköpunarhraðall fyrir framhaldsskólanemendur þar sem þeir vinna að því að þróa hugmyndir sínar og koma þeim í verk í formi frumgerða. Fjölbreytt teymi frá fimm framhaldsskólum tóku þátt í…Lesa meira

true

Stóru línubátarnir sækja langt á miðin

Eftir erfiða tíð í haust er loksins komin smá blíðukafli í veðrið. Því hafa bátar sem gerðir eru út frá höfnum Snæfellsbæjar komist á sjó síðustu daga og sjómenn notið veðurblíðunnar. Aflinn hefur verið góður á línu- og dragnótarveiðum og stóru línubátarnir hafa komið með fullfermi að landi. Þeir hafa leitað langt eftir aflanum, eða…Lesa meira

true

Stígamót biðla til almennings um stuðning

Ásóknin í ráðgjöf hjá Stígamótum hefur aukist til muna undanfarin misseri. Um 150 manns eru á biðlista og biðin eftir fyrsta viðtali er nú 7-8 vikur, sem í raun er alltof langur tími þegar svo stendur á. Þetta kemur fram á heimasíðu Stígamóta. „Við tókum þá ákvörðun að fjölga ráðgjöfum fram til áramóta vegna ástandsins…Lesa meira

true

Ók á ljósastaur

Ekið var á ljósastaur við Hvalfjarðargöng í liðinni viku. Áreksturinn var harður og bifreiðin nokkuð mikið skemmd. Snjóþekja var á vegi, hálka og snjókoma og var einn slasaður fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi. Þrjú önnur minni háttar umferðaróhöpp komu upp en öll án slysa á fólki. Maður sem var að setja upp jólaseríu utan á…Lesa meira

true

Rúm milljón safnaðist á góðgerðardegi Grundaskóla

Skólasamfélag Grundaskóla á Akranesi hélt árlegan góðgerðardag síðasta fimmtudag í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum til styrktar hjálparstarfi fyrir börn í neyð eða svokallaðan Malavímarkað. Verkefnið sem ber yfirskriftina „Breytum krónum í gull“ hefur verið haldið allt frá árinu 2007 í samstarfi við Rauða kross Íslands. Til sölu var fjölbreytilegur varningur sem búinn var til af nemendum…Lesa meira

true

Ráðherranefnd um verndun íslenskrar tungu kynnir aðgerðaáætlun

Aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu verður lögð fram sem þingsályktunartillaga á Alþingi á næstu dögum. Ráðherranefnd um málefni íslenskrar tungu kynnti í dag tillögur sínar að alls 19 aðgerðum sem miða að því að styrkja stöðu tungumálsins til framtíðar. Nefndin var sett á laggirnar í nóvember 2022, að tillögu forsætisráðherra. Henni er ætlað að efla…Lesa meira

true

Halda Landvættablót í Grundarfirði á föstudaginn

Landvættablót verður haldið í Grundarfirði föstudaginn 1. desember klukkan 18:00. Það verður við Víkingaskálann á móti Sögusetrinu. Jónína K. Berg Þórsnessgoði helgar blótið. Hún segir í tilkynningu að blótið sé öllum opið og öllum velkomið að mæta. „Lyftum horni til heilla landi og þjóð! Að blóti loknu verður boðið upp á heita súpu,“ segir Jónína.Lesa meira

true

Slökkviliðið mannar vaktir í Grindavík

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar hefur mannað vaktir í þrjá daga í Grindavík með öðrum viðbragðsaðilum víða af landinu. Síðastliðinn laugardag fór slökkviliðið í sína þriðju ferð á svæðið að veita aðstoð. Þau verkefni sem Slökkviliðið hefur sinnt á svæðinu eru til dæmis verðmætabjörgun af heimilum fólks og fyrirtækjum ásamt því að sinna vakt slökkviliðs á…Lesa meira

true

Snæfell nálægt sínum fyrsta sigri

Snæfell og Haukar mættust í tíundu umferð Subway deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Hólminum. Fyrir leik var Snæfell á botni deildarinnar enn án stiga á meðan Haukar voru í sjöunda sæti með átta stig. Liðin skiptust á að ná forystu í fyrsta leikhluta og munurinn var mest fimm stig í…Lesa meira