
Stígamót biðla til almennings um stuðning
Ásóknin í ráðgjöf hjá Stígamótum hefur aukist til muna undanfarin misseri. Um 150 manns eru á biðlista og biðin eftir fyrsta viðtali er nú 7-8 vikur, sem í raun er alltof langur tími þegar svo stendur á. Þetta kemur fram á heimasíðu Stígamóta. „Við tókum þá ákvörðun að fjölga ráðgjöfum fram til áramóta vegna ástandsins til að saxa á biðlistann. Þetta starf er hins vegar utan fjárhagsáætlunar okkar og því leitum við til þín til að hjálpa okkur að taka við fleiri brotaþolum,“ segir í tilkynningu frá samtökunum. Biðlað er til einstaklinga og fyrirtækja að leggja starfseminni lið til að standa straum af auknum kostnaði vegna vaxandi biðlista. „Við erum innilega þakklát fyrir fyrri stuðning við Stígamót. Þannig styður þú beint við þolendur kynferðisofbeldis og tekur afstöðu með þeim í baráttunni. Það er ómetanlegt. Þess vegna biðlum við til þín að hjálpa okkur að útrýma biðlistanum næstu mánuði með frjálsu framlagi til samtakanna,“ segir í tilkynningunni og vísað er til heimasíðu samtakanna.
„Tíminn læknar ekki öll sár og í okkar starfi erum við rækilega minnt á að tíminn skiptir máli. Það skiptir miklu máli fyrir þolendur kynferðisofbeldis að fá ráðgjöf og stuðning sem allra fyrst eftir að þau leita eftir honum. Sú vanlíðan sem biðin getur valdið á ekki að þurfa að vera til staðar ofan á þá þjáningu sem þolendur ofbeldisins hafa upplifað.“