
Fiskikör full af ýsu, sem nóg er af á miðunum. Góðri veiði hefur því fylgt tilheyrandi verðlækkun á fiskmörkuðum. Ljósmyndir: AF
Stóru línubátarnir sækja langt á miðin
Eftir erfiða tíð í haust er loksins komin smá blíðukafli í veðrið. Því hafa bátar sem gerðir eru út frá höfnum Snæfellsbæjar komist á sjó síðustu daga og sjómenn notið veðurblíðunnar. Aflinn hefur verið góður á línu- og dragnótarveiðum og stóru línubátarnir hafa komið með fullfermi að landi. Þeir hafa leitað langt eftir aflanum, eða nálægt miðlínunnar milli Íslands og Grænlands.