Fréttir

true

Pílufélag Akraness stóð sig vel á Íslandsmótinu

Íslandsmót félagsliða 2023 í pílu fór fram með pompi og prakt um síðastliðna helgi á Bullseye Reykjavík en átta aðildarfélög ÍPS í karlaflokki tóku þátt og fimm af þeim sendu einnig inn kvennalið. Keppt var því um tvo Íslandsmeistaratitla; í karla- og kvennaflokki. Á laugardag var keppt í tvímenningi og einmenningi og á sunnudag var…Lesa meira

true

Þorrablót Skagamanna að þessu sinni á Jaðarsbökkum

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag var samþykkt erindi frá Sjötíu og níu menningarfélagi um að styðja hið árlega Þorrablót Skagamanna með sambærilegum hætti og undanfarin ár með endurgjaldlausum afnotum af íþróttamannvirki Akraneskaupstaðar. Viðburðurinn verður laugardaginn 20. janúar 2024 í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Í fundargerð kemur fram að bæjarráð telur mikilvægt í ljósi sérstakra aðstæðna…Lesa meira

true

Hraðhleðslu uppbygging í Borgarnesi

Á fundi byggingafulltrúa Borgarbyggðar á þriðjudag var samþykkt erindi Rarik ohf. en fyrirtækið sótti um leyfi fyrir að setja upp spennistöð við Digranesgötu 4 vegna hleðslugarðs sem Orka Náttúrunnar hyggst reisa á lóðinni. Skessuhorn greindi frá því fyrr á árinu að ON stefndi á að festa kaup á umræddri lóð við hlið þeirrar sem Grillhúsið…Lesa meira

true

Lionsmenn gefa tæki á sjúkrahúsið

Lionsklúbbur Akraness hélt 1014. fund sinn í gærkveldi. Fundurinn fór fram í fundarherbergi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Þar var HVE á Akranesi afhent gjafabréf fyrir fjórum nýjum tækjum til notkunar á deildum spítalans. Um er að ræða Connect lífsmarkatæki, Varathon blöðruskanna, Intelli Vue hjartagjörgæslutæki og Acive A.C. sárasugu. Heildarandvirði gjafanna er 5,3 milljónir króna.…Lesa meira

true

Lýsa yfir vonbrigðum með áætlað leiguverð á Dalbraut 6

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar sem fram fór í gær kom fram að samkomulag milli Akraneskaupstaðar og Leigufélags aldraðra sé í burðarliðnum um útleigu íbúða í nýju fjölbýlishúsi á Dalbraut 6 á Akranesi. Á fundinum komu fram upplýsingar um áætlað leiguverð íbúðanna sem lagt var fram til kynningar og umræðu í ráðinu. Velferðar- og…Lesa meira

true

Umsóknir vegna jólaúthlutunar Mæðrastyrksnefndar Akraness

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 14. desember frá klukkan 13:00-16:30 að Dalbraut 2 (þar sem Blikkverk var síðast til húsa). „Við tökum við umsóknum á netfanginu msnakranes@gmail.com og í síma 859-3000 og 859-3200 dagana 24. nóvember til og með 30. nóvember frá klukkan 11-12:30. (ekki um helgar).“ Athygli er vakin á því að EKKI…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Snæfellinga orðinn UNESCO skóli

Fjölbrautaskóli Snæfellinga er orðinn UNESCO-skóli. Alls eru UNESCO-skólar hér á landi því orðnir 19 talsins; einn leikskóli, sjö grunnskólar og 11 framhaldsskólar. Sérstök þemavika um heimsmarkmiðin var haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í byrjun september. Þemavikan hófst á því að Kristrún María Heiðberg, verkefnastjóri UNESCO-skóla, kom í heimsókn og hélt fyrirlestur um heimsmarkmiðin fyrir nemendur og…Lesa meira

true

Nóg að gera hjá lögreglu

Afskipti voru höfð af 18 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. 297 ökumenn voru myndaðir með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Tveir ökumenn reyndust ekki vera með frágang á farmi í lagi og einn var kærður vegna brota á reglugerð um stærð og þyngd farms og ökutækis. Einn ökumaður er…Lesa meira

true

„Langaði alltaf meira að hjálpa fólki“

Rætt við Hildi Ingólfsdóttur kírópraktor sem opnaði nýlega stofu á Akranesi Kírópraktorar eru menntaðir til að greina, meðhöndla og fyrirbyggja vandamál í liðum, vöðvum og taugum fólks. Kírópraktorar eru löggilt heilbrigðisstétt á Íslandi og hefur kírópraktík þróast mjög á undanförnum áratugum og eru kírópraktorar stétt sem býr yfir mikilli þekkingu á helsta viðfangsefni sínu, stoðkerfisvandamálum.…Lesa meira

true

Vegir okkar allra – kílómetragjald í stað eldsneytisskatta

Fjármálaráðuneytið opnaði í gær upplýsingsíðuna Vegir okkar allra. Þar er að finna upplýsingar um nýja nálgun stjórnvalda á fjármögnun vegakerfisins sem innleidd verður í skrefum á næstu árum. Stefnt er að því að aðlaga fjármögnunarkerfið að orkuskiptum og minnkandi notkun jarðefnaeldsneytis með upptöku kílómetragjalds í stað olíu- og bensíngjalda en fjármála- og efnahagsráðherra mælti í…Lesa meira