Þau tóku á móti gjafabréfinu. F.v. Ingi Karl Reynisson yfirlæknir á lyflækningadeild, Fritz Berndsen yfirlæknir á handlækningadeild, Valdís Heiðarsdóttir hjúkrunardeildarstjóri á lyflækningadeild og Gunnar Fr. Hafsteinsson formaður Lionsklúbbs Akraness. Ljósm. mm

Lionsmenn gefa tæki á sjúkrahúsið

Lionsklúbbur Akraness hélt 1014. fund sinn í gærkveldi. Fundurinn fór fram í fundarherbergi á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Þar var HVE á Akranesi afhent gjafabréf fyrir fjórum nýjum tækjum til notkunar á deildum spítalans. Um er að ræða Connect lífsmarkatæki, Varathon blöðruskanna, Intelli Vue hjartagjörgæslutæki og Acive A.C. sárasugu. Heildarandvirði gjafanna er 5,3 milljónir króna.

Lionsmenn gefa tæki á sjúkrahúsið - Skessuhorn