Vegir okkar allra – kílómetragjald í stað eldsneytisskatta

Fjármálaráðuneytið opnaði í gær upplýsingsíðuna Vegir okkar allra. Þar er að finna upplýsingar um nýja nálgun stjórnvalda á fjármögnun vegakerfisins sem innleidd verður í skrefum á næstu árum. Stefnt er að því að aðlaga fjármögnunarkerfið að orkuskiptum og minnkandi notkun jarðefnaeldsneytis með upptöku kílómetragjalds í stað olíu- og bensíngjalda en fjármála- og efnahagsráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi á Alþingi um innleiðingu nýs kerfis. "Markmiðið er að tryggja fjármögnun vegakerfisins til framtíðar og jafnræði í gjaldtöku óháð orkugjafa ökutækja," segir í tilkynningu. Ljóst er að núverandi kerfi mun renna sitt skeið á enda og tekjur af því munu minnka verulega samhliða orkuskiptum.
Vegakerfið er nú að stórum hluta fjármagnað með olíu- og bensíngjöldum sem greidd eru fyrir notkun dísil- og bensínbíla af vegakerfinu þegar dælt er á bílinn. Með fjölgun rafmagns- og tengiltvinnbíla, sem greiða lítið eða ekkert fyrir notkun á vegakerfinu, og með fjölgun sparneytnari bíla hafa þessar tekjur dregist verulega saman. Fjármögnun vegakerfisins hefur því verið að veikjast á sama tíma og umferð hefur aukist. Þess vegna er nauðsynlegt að taka upp nýtt kerfi sem tryggir jafnræði í gjaldtöku og fjármögnun óháð orkugjöfum. Nýtt kerfi mun endurspegla betur raunverulega notkun á vegasamgöngum en olíu- og bensíngjöld gera með því að byggja á fjölda ekinna kílómetra.

Gert er ráð fyrir að aðlögunin á fjármögnunarkerfinu fari fram í tveimur áföngum:

Vegir okkar allra - kílómetragjald í stað eldsneytisskatta - Skessuhorn