
Fjölbýlishúsið Dalbraut 6 er á lokastigi. Ljósm. vaks
Lýsa yfir vonbrigðum með áætlað leiguverð á Dalbraut 6
Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Akraneskaupstaðar sem fram fór í gær kom fram að samkomulag milli Akraneskaupstaðar og Leigufélags aldraðra sé í burðarliðnum um útleigu íbúða í nýju fjölbýlishúsi á Dalbraut 6 á Akranesi. Á fundinum komu fram upplýsingar um áætlað leiguverð íbúðanna sem lagt var fram til kynningar og umræðu í ráðinu. Velferðar- og mannréttindaráð lýsti yfir vonbrigðum með það leiguverð sem Leigufélag aldraðra upplýsti um í leiguíbúðum fyrir aldraðra að Dalbraut 6. Vísaði velferðar- og mannréttindaráð til upplýsinga um samanburð við fermetraverð annarra leigufélaga en það fermetraverð sem Leigufélag aldraðra stillti fram sé töluvert hærra en annarra óhagnaðar- og hagnaðardrifinna leigufélaga.