
Umsóknir vegna jólaúthlutunar Mæðrastyrksnefndar Akraness
Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 14. desember frá klukkan 13:00-16:30 að Dalbraut 2 (þar sem Blikkverk var síðast til húsa). „Við tökum við umsóknum á netfanginu msnakranes@gmail.com og í síma 859-3000 og 859-3200 dagana 24. nóvember til og með 30. nóvember frá klukkan 11-12:30. (ekki um helgar).“ Athygli er vakin á því að EKKI er tekið við umsóknum um stuðning í gegnum Facebook síðu nefndarinnar.
„Allir umsækjendur þurfa að skila inn staðgreiðsluskrá sem hægt er að nálgast á mínum síðum hjá RSK og á skrifstofunni hjá RSK við Kirkjubraut 28 (jarðhæð). Best er að senda rafrænt en fyrir þá sem hafa ekki tök á því þá verðum við með móttöku á umsóknum í húsi Rauða krossins við Kirkjubraut 12 (gengið inn bakvið) föstudaginn 24. nóvember frá kl. 15-16:30 og föstudaginn 1. desember á sama tíma.“
Mæðrastyrksnefnd Akraness vill minna á styrktarreikninginn sinn: Kt: 411276-0829. Reikn. 0552-14-402048.